 Frábćrt framtak sem örugglega mun skila fleiri framtíđar stjörnum
| | 28. júní 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarHandboltaskóli Greifans - myndirVikuna 20.- 24. júní var starfrćktur Handboltaskóli Greifans. Kennslan fór fram í Íţróttahúsi KA viđ Lundarskóla en kennarar voru ţeir Jóhannes G. Bjarnason og Sćvar Árnson sem samanlagt hafa ţjálfađ handbolta í rúma hálfa öld. Á níunda tug nemenda á aldrinum 11-18 ára skráđu sig í skólann og var hópnum skipt eftir aldri. Ţátttakendur sóttu fyrirlestra um hina ýmsu ţćtti handboltans og síđan tóku viđ fjölbreyttar ćfingar í sal.
Á föstudeginum 24. var síđan sameiginleg ćfing hjá öllum hópunum og komu ţá margir góđir gestir sem ađstođuđu viđ ţjálfunina. Má ţar helsta nefna Guđjón Val Sigurđsson, Björgvin Pál Gústavsson, Ásgeir Hallgrímsson, Odd Gretarsson, Heimi Árnson, Jóhann Gunnar Jóhannson, Atla Hilmarsson auk fleiri góđra gesta. Ekki má gleyma heimsókn Arnórs Atlasonar á fyrsta degi skólans en ţá heimsótti hann alla hópa, sagđi til viđ ţjálfun og spjallađi viđ nemendur í lok ćfinga. Viđtökur foreldra og nemenda voru afar góđar og ţví líklegt ađ Handboltaskóli Greifans verđi aftur á dagskrá nćsta sumar. Ađstandendur skólans vilja ţakka Veitingahúsinu Greifanum fyrir samstarfiđ.
Hannes Pétursson sendi okkur fjöldann allan af myndum frá skólanum og er hćgt ađ skođa alla syrpuna međ ţví ađ smella hér. |