Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Ásgeir í leiknum gegn Akureyri í Mosfellsbæ á síðustu leiktíð

3. júlí 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Nýr leikmaður til Akureyrar Handboltafélags

Síðastliðinn föstudag var gengið frá samningi við Ásgeir Jónsson um að hann gangi í raðir Akureyrar Handboltafélags. Ásgeir kemur frá Aftureldingu og var einn af lykilmönnum liðsins síðasta vetur. Ásgeir æfði með Akureyrarliðinu í vikunni og sýndi, eins og menn raunar vissu, að hér er á ferðinni gríðarlega öflugur leikmaður. Öflugur varnarmaður og línumaður en Ásgeir skoraði 30 mörk í N1 deildinni síðasta vetur.

Þegar rýnt er í leiki síðasta tímabils þá reyndist hann Akureyrarliðinu sérlega erfiður í leik liðanna í Mosfellsbæ þann 2. desember sem Akureyri vann reyndar með naumindum 24-25. Sjá umfjöllun um leikinn.

Við bjóðum Ásgeir velkominn til leiks en hann er jafnframt að hefja nám í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri.

Annars hefur Akureyrarliðið æft af kappi að undanförnu og munu æfingar halda áfram út næstu viku en þá tekur við kærkomið frí frá skipulögðum æfingum fram að verslunarmannahelgi.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson