Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það þýðir ekkert nema sigur í bikarleikjum

28. október 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri fékk útileik á móti FH í Eimskipsbikarnum

Nú í hádeginu var dregið í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar og óhætt að segja að Akureyri fái verðugt verkefni í þessari umferð. Útileikur gegn Íslandsmeisturum FH var kannski ekki óskaniðurstaðan en engu að síður staðreynd.

Leikdagurinn hefur ekki verið ákveðinn en allir leikirnir eiga að fara fram 13. eða 14. nóvember.

Leikir 16-liða úrslita karla eru sem hér segir:
Afturelding - Grótta
ÍR - Valur
Hörður - Heimsliðið (Stjarnan 2)
FH - Akureyri
Stjarnan - HK
Valur 2 - Fram
ÍBV 2 - HK 2
ÍBV - Haukar


Akureyri fagnaði sigri á FH í bikarnum í fyrra

Eimskipsbikar kvenna
Hjá konunum fékk lið KA/Þór einnig útileik gegn FH en þess er skemmst að minnast að stelpurnar í KA/Þór unnu einmitt FH liðið á heimavelli í síðustu umferð deildarinnar. Kvennaleikirnir verða 15. og 16. nóvember.

Fram og Valur sitja hjá í þessari umferð en leikir kvennaliðanna eru sem hér segir:
Víkingur - Selfoss
Grótta - ÍR
Afturelding - ÍBV
HK - Fylkir
Haukar - Stjarnan
FH - KA/Þór.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson