 Það verður trúlega mikið áhorf á RÚV í dag
| | 30. október 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: HK – Akureyri í beinni á RÚVÞað er komið að lokaleik 6. umferðar í dag þegar Akureyri sækir HK heim í Digranesið í Kópavogi. RÚV sýnir leikinn í beinni útsendingu, leikurinn hefst klukkan 15:45 en útsendingin aðeins fyrr eða klukkan 15:30.
Það verður forvitnilegt að sjá hvernig Akureyrarliðið verður skipað en leikmenn sem hafa verið í meiðslavandræðum eru sem betur fer að skila sér inn. Þannig er ekki ósennilegt að Daníel Einarsson verði í hóp í dag, nokkuð hefur verið rætt um hugsanlega endurkomu Heimis Árnasonar en það er þó allt á huldu.
Þá er vitað að Oddur Gretarsson verður ekki með enda tekur hann út leikbann í dag. Bergsteinn Gíslason sem hefur verið að leika í vinstra horninu fékk töluverðan skurð á augabrún á æfingu í vikunni og því óljóst með þátttöku hans að þessu sinni.
Þá fréttist af sveitarstjóra Eyjafjarðarsveitar við barnapössun í Svíþjóð og gefur það fyrirheit um liðsstyrk þaðan.
Það verður því forvitnilegt að fylgjast með útsendingunni en að sjálfsögðu hvetjum við alla stuðingsmenn Akureyrar á höfuðborgarsvæðinu til að fjölmenna í Digranesið og styðja strákana til sigurs í dag. |