Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það verður alvöru bikarstemming á sunnudaginn

8. nóvember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri fer í Hafnarfjörðinn á sunnudaginn

Það verður stórleikur í Eimskipsbikarnum næstkomandi sunnudag þegar FH og Akureyri mætast í 16 liða úrslitunum. Leikurinn verður í Kaplakrika og hefst klukkan 15:45 og samkvæmt áreiðanlegum heimildum verður leikurinn sýndur beint á RÚV.

Þetta er eini slagur úrvalsdeildarliða í þessari umferð og því ekki ósennilegt að augu handknattleiksáhugamanna beinist sérstaklega að þessum leik.

Bæði lið eiga þó eftir deildarleik áður sem þau eru trúlega að einblína á þessa stundina. Þannig á Akureyri heimaleik gegn Gróttu á fimmtudagskvöldið og á sama tíma mætast FH og Haukar í uppgjöri Hafnarfjarðarliðanna.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson