Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Heimir og Daníel komnir á kreik á ný



10. nóvember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins Akureyri – Grótta í textalýsingu

Það er runninn upp leikdagur í handboltanum og það enginn venjulegur leikdagur. Heimaleikur gegn Gróttu og það sem meira er þá verður þetta væntanlega fyrsti heimaleikur tímabilsins hjá Heimi Erni Árnasyni og Daníel Einarssyni en báðir eru komnir til baka eftir löng meiðsli.
Grunur leikur á að Heimir ætli sér jafnframt að skora sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu og skulum við vona að það gangi eftir.
Gróttu liðið hefur staðið sig vel á tímabilinu þó að stigin séu ekki mörg en þeir hafa veitt mikla mótspyrnu í öllum leikjum og enginn skyldi bóka auðveldan sigur á móti þeim.
Leikurinn hefst klukkan 19:00 í dag og við vonumst eftir dyggum stuðningi áhorfenda.

Smelltu hér til að fylgjast með beinni textalýsingu frá leiknum.

Það er svo stutt í næsta leik hjá Akureyri Handboltafélagi því að á sunnudaginn fer liðið til Hafnarfjarðar og leikur við FH í 16-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Sá leikur hefst klukkan 15:45 og verður í beinni útsendingu á RÚV.
Jafnframt er rétt að benda á að það er mikið um að vera á laugardaginn í handboltanum hér á Akureyri. 2. flokkur Akureyrar mætir Stjörnunni í Íþróttahöllinni klukkan 12:30.
Strax þar á eftir eða klukkan 14:00 leika í Íþróttahöllinni 3. flokkur KA gegn Stjörnunni og klukkan 16:00 er leikur í N1 deild kvenna þar sem KA/Þór mætir Stjörnunni í KA heimilinu.
Sem sagt mikið um að vera í handboltaheiminum á Akureyri þessa dagana.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson