 Atli og Sævar þurfa að ná upp baráttuandanum hjá sínum mönnum í kvöld
| | 17. nóvember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Akureyri – Afturelding í textalýsinguÞá er runninn upp heimaleiksdagur þar sem Mosfellingar í Aftureldingu koma í heimsókn. Það er ekkert nema tilhlökkun í gangi, leikmenn Akureyrar ætla svo sannarlega að sýna hvað í þeim býr eftir slaka frammistöðu í bikarleiknum gegn FH á sunnudaginn. Að sama skapi eru Aftureldingarmenn ekki heldur sáttir með að hafa dottið út úr bikarkeppninni gegn Gróttu á dögunum.
Það er því klárt mál að það verður barist af fullum krafti í Íþróttahöllinni í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19:00.
Einn leikmaður Aftureldingar, Einar Héðinsson, verður í leikbanni í kvöld en hann fékk beint rautt spjald og útilokun með skýrslu í bikarleiknum gegn Gróttu og aganefnd HSÍ er búin að dæma hann í eins leiks bann sem tekur gildi í dag.
Leikurinn verður eins og vanalega í beinni textalýsingu hér á heimasíðunni, smelltu hér til að opna lýsinguna. |