 Bjarni, Oddur og Sveinbjörn áttu góðan leik í kvöld


| | 17. nóvember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarGóður átta marka sigur Akureyringa á AftureldinguAkureyri vann í kvöld sinn annan leik í röð í N1-deild karla í handknattleik er liðið hafði betur gegn Aftureldingu, 34-26, í Höllinni á Akureyri í kvöld. Norðanmenn höfðu undirtökin nánast allan leikinn og náðu mest ellefu marka forystu í seinni hálfleik. Afturelding sýndi hins vegar mikinn karakter með að koma til baka og minnka muninn í fjögur mörk en komust ekki nær og Akureyringar fögnuðu mikilvægum tveimur stigum.
Við vitnum hér í umfjöllun Þrastar Ernis Viðarssonar, blaðamanns Vikudags.
Akureyri byrjaði leikinn vel og komst í 4-0. Afturelding komst ekki á blað fyrr en tæplega átta mínútur voru liðnar af leiknum. Sóknarleikur Mosfellinga var slakur og skotin rötuðu oft ekki á rammann. Afturelding tók hins vegar við sér þegar leið á og skoraði næstu þrjú mörk og minnkaði muninn í 4-3 og náði að jafna í 5-5. Jafnt var á tölum næstu mínútur en Akureyringar náðu þriggja marka forystu á ný, 12-9, þegar tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum. Norðanmenn bættu við forystuna fyrir leikhlé og leiddu með fjórum mörkum, 17-13, í hálfleik.
Oddur Gretarsson var allt í öllu í sóknarleik Akureyrar í fyrri hálfleik, skoraði 8 mörk í öllum regnbogans litum. Sveinbjörn Pétursson sýndi takta á kölfum í markinu og varði 8 skot. Hjá Aftureldingu dreifðist markaskorið mikið og markvörðurinn Hafþór Einarsson hefur oft fundið sig sig betur gegn sínum gömlu félögum með 6 skot varin. Bergvin Gíslason skorar hjá Hafþóri í leiknum Heimamenn skoruðu fyrstu tvö mörkin í seinni hálfleik og náðu sex marka forystu, 19-13. Akureyri hélt áfram að auka við forystuna og þegar sjö mínutur voru liðnar af seinni hálfleik var staðan 22-14 og ljóst að róðurinn yrði þungur fyrir gestina. Áfram hélt vandræðagangur Aftureldingar í sókninni og heimamenn gengu á lagið með hraðaupphlaupum og juku muninn í níu mörk, 23-14. Reynir Þór Reynisson þjálfari Aftureldingar fékk þá nóg og tók leiklé, þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik.
Akureyringar héldu hins vegar áfram að bæta í forystuna sem var orðinn 11 mörk, 25-14, og fátt virtist koma í veg fyrir stóran norðlenskan sigur. Mosfellingar eru hins vegar ekki þekktir fyrir að gefast upp. Davíð Svansson kom í markið og varði fjögur skot á stuttum tíma og Afturelding minnkaði muninn í kjölfarið niður í sjö mörk, 25-18. Davíð kemur engum vörnum við þegar Heimir Örn skorar í skrefinu Davíð hélt áfram að verja og Mosfellingar söxuðu jafnt og þétt á forskotið sem var komið niður í sex mörk, 28-22, þegar tíu mínútur lifðu leiks. Munurinn var minnst niður í fjögur mörk, 30-26, og ennþá þrjár mínútur eftir. Akureyringar hleyptu þeim hins vegar ekki nær. Mosfellingar flýttu sér of mikið í sóknarleiknum og norðanmenn tóku góða rispu í restina og fögnuðu að lokum átta marka sigri, 34-26. Sanngjarn sigur og Akureyringar fara upp í sjö stig en Afturelding hefur áfram fjögur stig.
Mörk Akureyrar: Oddur Gretarsson 11, Bjarni Fritzson 11 (3 úr vítum), Guðmundur Hólmar Helgason 4, Bergvin Gíslason 3, Geir Guðmundsson 2, Heimir Örn Árnason 2, Heiðar Þór Aðalsteinsson 1 Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 22.
Mörk Aftureldingar: Sverrir Hermannsson 6, Þorlákur Sigurjónsson 5, Jóhann Jóhannsson 4 (1 úr víti), Þrándur Gíslason 4, Böðvar Páll Ásgeirsson 2, Chris Mcdermont 1, Daníel Jónsson 1, Mark Hawkins 1, Hrannar Guðmundsson 1. Varin skot: Hafþór Einarsson 5 og Davíð Svansson 8..
Í leikslok var tilkynnt um val á bestu leikmönnum liðanna, hjá Aftureldingu var Jóhann Jóhannsson valinn bestur og Bjarni Fritzson hjá Akureyri. Báðir fengu að launum matarkörfu frá Norðlenska. Atli og Sævar messa yfir leikmönnum í leikhléi Hér er hægt að skoða fleiri myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum. |