 Menn fara sáttir í jólfafríið
| | 19. desember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarHvað sögðu menn eftir leik Vals og Akureyrar - myndirÞað voru ánægðir þjálfarar og leikmenn Akureyrar sem flugu norður í gær eftir góðan sigur á Valsmönnum. Ekki spillti gleðinni að vita af glæsilegu jólahlaðborði á Strikinu þegar heim kæmi.
Hér fara á eftir nokkur viðtöl sem hafa birst í fjölmiðlum eftir leikinn. Fyrst koma viðtöl Ívars Benediktssonar á Morgunblaðinu en hann ræddi við þjálfara liðanna eftir leikinn á Hlíðarenda:Atli Hilmarsson: Förum glaðir í jólahlaðborðiðAtli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, var ánægður með sigur sinna manna, 30:23, á Val í Valsheimilinu í dag í N1-deild karla í handknattleik. „Næst á dagskrá er að fara norður í jólahlaðborð sem bíður leikmanna og annarra sem starfa í kringum liðið í kvöld.“ Atli sagði að vörnin hefði verið góð hjá liðinu í fyrri hálfleik í dag en í síðari hálfleik hefði sóknarleikurinn einnig batnað til muna, ekki síst eftir að Heimir Örn Árnason, sýndi styrk sinn við leikstjórnina. Þar með hefði leiðir skilið með liðunum að þessu sinni.
Nú tekur við sex vikna hlé á keppni í N1-deildinni vegna Evrópumeistaramótsins í handknattleik karla í Serbíu í næsta mánuði. Atli sagði að nú yrði tíminn vel nýttur til þess að bæta leik liðsins og gera atlögu að einum af fjórum efstu sætum deildarinnar á endaspretti deildarkeppninnar.
Óskar Bjarni: Nú gefst tími til bæta liðiðÓskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, var að vonum ósáttur við tap sinn manna fyrir Akureyri, 30:23, á heimavelli í N1-deildinni í handknattleik í dag. Þetta er annar leikurinn á skömmum tíma þar sem Valsliðið nær sér alls ekki á strik.
Óskar sagði engar einhlítar skýringar á þessu en nú gefist nokkurra vikna frí frá keppni til þess að fara yfir hlutina og bæta eitt og annað, ekki væri vanþörf á. Mikill efniviður væri fyrir hendi innan Valsliðsins til þess að ná betri árangri og komst inn í fjögurra liða úrslitakeppnina. Valur er í sjötta sæti eftir leikinn í dag, þremur stigum á eftir Akureyri sem er í fimmta sæti.
Stefán Árni Pálsson blaðamaður visir.is og Fréttablaðsins ræddi við Atla Hilmarsson og Sturlu Ásgeirsson leikmann Vals:Atli: Það verður gott fyrir ákveðna leikmenn að fá smá hvíld„Þetta var frábær sigur hjá okkur og við erum að bæta okkur jafnt og þétt með hverjum leik,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, eftir sigurinn í dag.
„Við vorum hundóánægðir með okkar spilamennsku í hálfleik þrátt fyrir að staðan hafi verið jöfn þá. Við byrjuðum síðan seinni hálfleikinn frábærlega vel og klárum leikinn í raun og veru þá. Sóknarlega var liðið eilítið hikandi í fyrri hálfleiknum og við vorum að spila bara allt of hægt en það small allt í seinni hálfleiknum. „Ég er virkilega feginn að komast í smá pásu núna og fá tækifæri til að hvíla leikmenn og koma hópnum í almennilegt stand. Við erum með frábært lið og þegar allir eru heilir þá ráða fáir við okkur“.Sturla Ásgeirsson: Áttum í raun ekki séns í seinni hálfleik„Þetta var mjög súrt tap,“ sagði Sturla Ásgeirsson, fyrirliði Vals, eftir tapið í dag. „Leiðinlegt að fara inn í fríið með tap á bakinu og einnig erum við komnir þremur stigum á eftir Akureyri eftir þennan leik sem er mjög svo slæmt. Ég var ánægður með fyrri hálfleikinn og vorum alls ekki síðri aðilinn þá. Síðan hrynur bara allt í síðari hálfleiknum hvort sem það er vörn, sókn eða markvarsla. Ég veit ekki hvað gerðist hvort menn voru eitthvað þreyttir en við áttum í raun ekki séns í seinni hálfleik. Það verður nóg að gera hjá okkur í þessu svokallaða fríi og við þurfum í raun að bæta okkur á öllum sviðum“. Gulli og Heimir hafa öruggar gætur á landsliðfulltrúanum Sigfúsi
 Bjarni Fritzson skorar eitt af tíu mörkum sínum án þess að Hlynur Morthens komi vörnum við Á visir.is eru fleiri ljósmyndir Vilhelms frá leiknum, smelltu hér til að skoða myndirnar.Vídeóviðtöl við Atla og Óskar Bjarna á Sport.isVið endum þessa samantekt á vídeóviðtölum við þjálfarana sem birtust á sport.is. Smelltu á myndirnar til að sjá og heyra viðtölin:
|