Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Til hamingju Gummi og Bjarni!



20. desember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Guðmundur Hólmar og Bjarni Fritzson í liði 12. umferðar

Íþróttafréttaritarar Morgunblaðsins birtu í dag val sitt á úrvalsliði 12. umferðar N1 deildarinnar. Akureyri Hanboltafélag á tvo leikmenn í hópnum að þessu sinni þá Guðmund Hólmar Helgason og Bjarna Fritzson. Bjarni Fritzson er valinn besti hægri hornamaðurinn en nokkra athygli vekur að Guðmundur Hólmar virðist vera valinn besti vinstri hornamaðurinn (sjá mynd sem fylgir fréttinni) en hann leikur sem kunnugt er yfirleitt í stöðu vinstri skyttu.

Lið umferðarinnar er þannig skipað:
Vinstra horn: Guðmundur Hólmar Helgason Akureyri (2. sinn)
Vinstri skytta: Tandri Konráðsson HK
Lína Heimir Óli Heimisson Haukum (3. sinn)
Leikstjórnandi: Ólafur Gústafsson FH (4. sinn)
Hægri skytta: Arnar Birkir Hálfdánsson Fram
Hægra horn: Bjarni Fritzson Akureyri (6. sinn)
Markvörður: Aron Rafn Eðvarðsson Haukum (2. sinn)
Varnarmaður: Vilhelm Gauti Bergsveinsson HK (2. sinn)


Guðmundur Hólmar og Bjarni Fritzson í leiknum gegn Val í 12. umferðinni. Myndir: Vilhelm visir.is

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson