Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Frábær stemming var í fyrra og væntanlega ekki síðri í ár

25. janúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Karlakvöld - Taktu frá föstudagskvöldið 17. febrúar

Í mars á síðasta ári var haldið velheppnað karlakvöld Akureyrar Handboltafélags á Pósthúsbarnum. Fjölmargir hafa spurt hvort eigi ekki að endurtaka leikinn og nú er ákveðið að það verður föstudaginn 17. febrúar. Undirbúningsnefnd hefur hafið störf en vill ekki að svo stöddu gefa upp nöfn veislustjóra eða ræðumanns kvöldsins.

Ýmiss óvænt skemmtiatriði verða í boði ásamt gómsætum veitingum.

Við kynnum þetta allt betur þegar nær dregur, en það er ástæða til að merkja nú þegar við 17. febrúar á dagatalinu.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson