 Andri Snær á vítapunktinum hjá Odder fyrr í vetur
| | 26. janúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarAndri Snær Stefánsson snýr aftur til AkureyrarÞau tíðindi voru að berast að Andri Snær Stefánsson, einn af leikjahæstu mönnum Akureyrar Handboltafélags sé að koma til liðsins á ný eftir eins og hálfs árs dvöl í Danmörku. Andri Snær hefur leikið með Odder Håndbold þennan tíma en Odder er með lið bæði í 1. og 2. deild í danska boltanum. Andri í kunnuglegri stöðu, skorar úr vinstra horninu fyrir Odder
 Fremstur í hraðaupphlaupi og skorar í leik með Odder Það ætti ekki að þurfa að kynna Andra Snæ fyrir stuðningsmönnum Akureyrar en hann lék með liðinu fyrstu fjögur árin, alls 99 leiki í deild og bikar og var valinn besti leikmaður Akureyrarliðsins tímabilið 2006-2007 og árið 2008.
Andri Snær er væntanlegur til Akureyrar um mánaðarmótin janúar-febrúar og ljóst að það verður liðinu mikill styrkur að fá þennan reynslubolta heim aftur. Við bjóðum hann velkominn í herbúðir Akureyrar á ný og eigum væntanlega eftir að sjá hann á fjölum Íþróttahallarinnar fljótlega. Andri skorar gegn FH í deildarbikarnum í desember 2009
|