 Svavar stýrði samkvæminu af röggsemi
| | 28. febrúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarHerrakvöld Akureyrar Handboltafélags – myndirFöstudaginn 17. febrúar síðastliðinn var haldið velheppnað herrakvöld Akureyrar Handboltafélags á Hótel KEA. Tekið var á móti gestum með fordrykk við innganginn og fljótlega var borinn fram dýrindis matur. Þeir skemmtu sér vel Veislustjórn var í höndum Svavars Alfreðs Jónssonar og er óhætt að segja að Svavar fór á kostum.
Þá voru kynntir þrír ræðumenn, íþróttafréttaritarinn Adolf Ingi Erlingsson, alþingismaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson og loks fyrirliðinn Heimir Örn Árnason. Allir komust þeir vel frá sínu og til að mynda rakti Heimir nokkur dæmi um hvernig þýskukunnáttan hefur oft komið að góðum notum á keppnisferðum erlendis.  Svavar og Heimir Örn
 Sigmundur Ernir og Adolf Ingi Bráðefnilegur dúett flutti nokkur lög þar sem Atli Hilmarsson slóst í hópinn og tók að sjálfsögðu Fiskinn hennar Stínu.
Eftir uppboð voru dregnir fjölmargir happadrættisvinningar og fóru ýmsir vel klyfjaðir heim.
Hér er hægt að skoða nokkrar myndir frá kvöldinu, myndasmiður var Ómar Guðmundsson. |