Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það má ekkert út af bregða í Mosfellsbænum

29. febrúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Mikilvægur útileikur á fimmtudaginn gegn Aftureldingu

Eftir enn eitt hléið á N1 deildinni verður þráðurinn tekinn upp á ný á fimmtudaginn þegar 16. umferð deildarinnar hefst með þremur leikjum. Akureyri leikur þá sinn þriðja útileik í röð, að þessu sinni liggur leiðin í Mosfellsbæ þar sem leikið verður gegn heimamönnum í Aftureldingu.

Staðan í efri hluta deildarinnar er svo jöfn að óhætt er að fullyrða að hver einasti leikur til loka deildarinnar er hreinn úrslitaleikur um að verða í hópi fjögurra efstu liða. Leikurinn gegn Aftureldingu er einn af þessum stórhættulegu leikjum sem þarf að taka grafalvarlega. Akureyri lenti í basli í síðasta leik gegn Gróttu á meðan Afturelding var í raun óheppið að sækja ekki stig í 26-25 tapi gegn FH í Hafnarfirðinum.

Aftureldingarliðið hefur eflst mjög í síðustu leikjum en í þarsíðustu umferð gerðu þeir jafntefli gegn Fram 23 – 23 þannig að það er fullkomnlega ljóst að hér er svo sannarlega lið sem þarf að bera fulla virðingu fyrir. Reynir Þór Reynisson tók við þjálfun liðsins í vetur og er greinilega að gera góða hluti.
Markaskorunin dreifist mjög hjá Aftureldingu en Sverrir Hermannsson, Hilmar Stefánsson, Böðvar Páll Ásgeirsson og Jóhann Jóhannsson eru markahæstir með 44 til 57 mörk í deildinni til þessa.

Þá leikur markvörðurinn, Hafþór Einarsson sem kunnug er með liðinu en auk hans er í markinu Davíð Hlíðdal Svansson sem hefur sýnt frábæran leik upp á síðkastið, varði t.d. þrjú vítaköst á móti FH í síðasta leik.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson