 Guðmundur hefur um ýmislegt að hugsa þessa dagana
| | 22. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarGuðmundur Hólmar og Herdís eignuðust son á þriðjudaginn
Það er mikið um að vera hjá Guðmundi Hólmari Helgasyni þessa dagana, tveir stórleikir með Akureyri Handboltafélagi í vikunni, fyrst sigurleikurinn gegn FH á mánudaginn og síðan leikur gegn Fram á föstudaginn.
Trúlega er þó annar atburður sem verður honum og unnustu hans, Herdísi Maríu Sigurðardóttur minnisstæðari í framtíðinni en þeim fæddist myndarlegur sonur síðastliðinn þriðjudag.
Frumburðurinn hefur fengið nafnið Júlíus Hólmar Guðmundsson og heilsast fjölskyldunni vel.
Við sendum Guðmundi og Herdísi hamingjuóskir og óskum þeim alls hins besta í foreldrahlutverkinu.
 Hamingjusamur faðir með soninn Júlíus Hólmar Guðmundsson
|