 Það er býsna mikið undir í þessum leik
| | 23. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Fram – Akureyri í beinni á SportTV.isÍ dag fer fram næstsíðasta umferð N1 deildar karla og ekki laust við að það séu mikilvægir leikir á dagskrá. Spennan felst sem sé í því hvaða þrjú lið fylgja Haukum í úrslitakeppnina. Akureyri, FH, HK, Fram og Valur eiga öll möguleika á að komast þangað og því má búast við að liðin leggi allt í leiki dagsins. Vikudagur ræddi í gær við þá Guðlaug Arnarsson og Atla Hilmarsson um leikinn og fara svör þeirra hér á eftir:
„Við verðum að halda áfram þar sem frá var horfið í síðasta leik og ná upp sömu stemmingu,“ segir Guðlaugur um leikinn gegn Fram. „Við þurfum að vinna þessa leiki ef við ætlum okkur áfram. Við sýndum hvað í okkur bjó gegn FH og verðum að halda því áfram í Safamýrinni,“ segir Gulli.
Atli Hilmarsson tekur í sama streng. „Það er mikill hugur í okkur að fara í úrslitakeppnina og með sömu frammistöðu og gegn FH þá förum við langt í þessari keppni. Við getum hins vegar farið á ansi lágt plan og við verðum að mæta Fram í sama ham og í síðasta leik. Þetta verður enn einn úrslitaleikurinn, Fram er eitt af þeim liðum sem við erum að berjast við,“ sagði Atli. Gulli og Atli með spurnarsvip Leikurinn verður í beinni útsendingu á SportTV.is og hefst útsendingin rétt fyrir klukkan 19:30 en allir leikir tveggja síðustu umferða N1 deildarinnar eru leiknir samtímis. Hér að neðan ætti útsending SportTV.is að birtast.Einnig er hægt að smella hér til að fara á síðu SportTV.is. |