Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Hlynur var öflugur í varnarleiknum í dag

25. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Bćđi liđ međ góđa sigra um helgina

Í dag, sunnudag lék Akureyri-1 sinn nćstsíđasta deildarleik ţegar HK kom í heimsókn. Akureyrarstrákarnir tóku leikinn strax í sínar hendur og byggđu jafnt og ţétt upp öruggt forskot, stađan var 11 – 5 fyrir heimamenn ţegar fyrri hálfleikur var um ţađ bil hálfnađur. Ţá kom kafli ţar sem ekkert gekk hjá liđinu, markvörđur HK varđi allt sem kom á markiđ jafnt dauđafćri sem annađ. Ţetta nýttu HK menn vel og skoruđu fimm mörk í röđ og forskot Akureyrar komiđ niđur í eitt mark, 11 – 10.
Ţá loksins tókst ađ brjóta ísinn og Akureyri međ ţriggja marka forskot í hálfleik 15-12.

Fram í miđjan seinni hálfleikinn hélst ţessi munur ţrjú til fjögur mörk en síđasta korteriđ tók Akureyrarliđiđ öll völd á vellinum og landađi öruggum níu marka sigri 33 – 24 og mikilvćg tvö stig í húsi.

Mörk Akureyrar: Valţór Atli Guđrúnarsson 7, Jón Ţór Kristjánsson 5, Geir Guđmundsson 4, Halldór Örn Tryggvason 3, Jón Heiđar Sigurđsson 3, Ólafur Jóhann Kristjánsson 3, Sigţór Árni Heimisson 3, Snorri Björn Atlason 3, Ásgeir Jóhann Kristjánsson og Bjarki Már Halldórsson 1 mark.
Markvarsla: Páll Jónsson stóđ í markinu lengst af og varđi a.m.k. 16 skot. Gunnar Bjarki Ólafsson kom í markiđ undir lokin og varđi 4 skot.

Um nćstu helgi eiga strákarnir heimaleik gegn FH og međ sigri í honum tryggja ţeir sér deildarmeistaratitilinn.

2. deildin
Strákarnir í Akureyri-2 léku sömuleiđis sinn nćstsíđasta leik í 2. deildinni á laugardaginn ţegar ţeir unnu öruggan sigur á Aftureldingu. Akureyri hafđi góđa forystu frá upphafi, 16 - 10 í hálfleik og lokatölur 27 – 22.

Mörk Akureyrar: Ađalsteinn Halldórsson 7, Vilhelmas Borkatas 6, Heimir Sigurđsson 5, Halldór Kristinn Harđarson 4, Böđvar Nielsen 2, Bjarki Sćţórsson, Egill Gunnarsson og Elvar Sigurđsson 1 mark hver.

Laugardaginn 31. mars leikur Akureyri-2 sinn síđasta deildarleik ţegar ţeir fá FH-2 í heimsókn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson