 Það er greinilega vandaverk að spá í framtíðina
| | 25. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarHvernig gekk spámönnunum 20. umferðar?Það voru tuttugu og sjö aðilar sem sendu inn spá um leikina fjóra í N1 deildinni á föstudagskvöldið. Leikirnir reyndust miserfiðir spámönnunum, sem dæmi þá spáði enginn rétt um jafntefli Fram og Akureyrar. Allir spáðu rétt um sigur Hauka á Aftureldingu, allir nema einn spáðu rétt um að Valur ynni Gróttu og fimm aðilar spáðu rétt með að leik FH og HK lyki með jafntefli.
Það var sem sé enginn með alla fjóra rétta en fimm voru með þrjá rétta. Þetta voru: Guðmundur Freyr Hermannsson, Viddý (Vigdís Rafnsdóttir), Geir Kr., Klara Geirsdóttir og Eðvarð Þór Eðvarðsson.
Enginn náði að spá réttri markatölu í einum einasta leik þessu sinni. Eðvarð Þór var þó næst því en hann spáði rétt um markafjölda Aftureldingar í leiknum gegn Haukum og jafnframt spáði hann rétt um markaskorun Gróttu gegn Val.
Það verður forvitnilegt að sjá hvernig mönnum gengur að spá í lokaumferðina sem verður næstkomandi föstudag, 30. mars. Við opnum fljótlega fyrir spádóma en í lokaumferðinni eru eftirfararndi leikir: Afturelding - Grótta, Akureyri - Valur, HK - Fram og Haukar - FH. |