Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Árni tók leikinn í sínar hendur

8. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Árni Þór Sigtryggsson hetja Bittenfeld - myndband

Árni Þór Sigtryggsson, fyrrum leikmaður Akureyrar minnti heldur betur á sig þegar hann átti stórleik með liði sínu Bittenfeld í gær. Árni fór á kostum og skoraði níu mörk í þegar Bittenfeld sem leikur í þýsku 2. deildinni tók á móti Potsdam.
Árni tryggði liði sínu jafntefli á lokasekúndum leiksins og var langmarkahæstur auk þess að mata félaga sinn Arnór Þór Gunnarsson vel í hægra horninu. Arnór er sem kunnugt er einnig Akureyringur og var næstmarkahæstur með fimm mörk.

Hér er hægt að horfa á myndband frá leiknum, Árni er númer 15 í hægri skyttunni og Arnór númer 11 í hægra horninu.



Þeir sem vilja spreyta sig á þýskunni geta smellt hér til að lesa um leikinn á heimasíðu Bittenfeld.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson