Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Guðmundur Hólmar var atkvæðamikill í dag

8. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-20: Íslenska liðið vann riðilinn og er komið á EM

Íslenska U-20 ára landslið karla vann 28-24 sigur á Eistlandi í dag og þar með riðilinn. Guðmundur Hólmar Helgason skoraði 7 mörk og var markahæstur Íslendinga. Geir Guðmundusson var öflugur líka en hann skoraði 4 mörk.
Mörk Íslands í leiknum skoruðu: Guðmundur Hólmar Helgason 7, Sveinn Aron Sveinsson 5, Geir Guðmundsson 4, Janus Smárason 4, Garðar Sigurjónsson 4, Ísak Rafnsson 2, Árni Benedikt Árnason 1 og Víglundur Þórsson 1.

Þar með er ljóst að þeir frændur, Guðmundur og Geir fara með U-20 ára liðinu til Tyrklands í sumar þar sem lokakeppnin fer fram.


Guðmundur Hólmar á flugi í dag. Mynd: Pjetur Sigurðsson visir.is


Geir Guðmundsson sáttur með gangi mála. Mynd: Pjetur Sigurðsson visir.is

Sjá fleiri myndir frá leiknum í dag.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson