Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það bjóðast ekki hagstæðari ferðir, 4.000 kr sætið fram og til baka!

11. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Sætaferð á leik FH og Akureyrar á þriðjudaginn - bókaðu far hér

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að Akureyri Handboltafélag er í úrslitakeppni Íslandsmótsins. Fyrsti leikur okkar er gegn FH og fer fram í Kaplakrika þriðjudaginn 17. apríl og hefst leikurinn klukkan 19:00.

Þetta er þriðja árið í röð sem Akureyri handboltafélag leikur í úrslitakeppninni og nú er komið að því að fara alla leið. Fyrsta skrefið verður tekið í Hafnarfirði og þar ríður á að fá sem mestan og bestan stuðning áhorfenda.

Stemmingin í slíkum úrslitaleikjum er þannig að þeir sem hafa upplifað hana einu sinni vilja örugglega ekki missa af slíku tækifæri og því hafa Sérleyfisbílar Akureyrar (SBA) ákveðið að bjóða upp á sætaferðir á leikinn.

Farið verður frá Íþróttahöllinni á Akureyri klukkan 13:00 á þriðjudaginn 17. apríl og heim aftur fljótlega að leik loknum. Sætaverð er 4.000 krónur.

Það er vissara að tryggja sér sæti sem fyrst.
Smelltu hér til að bóka far.

Einnig er hægt að bóka og greiða ferðina með því að koma í höfuðstöðvar SBA að Hjalteyrargötu 10 á Akureyri alla virka daga á milli klukkan 8:00 og 17:00.

Þegar í Hafnarfjörðinn kemur verður farþegum boðið upp á fríar PIZZUR!


Frá ferðinni á bikarúrslitaleikinn 2011

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson