 Það verður hart barist í viðureigninni
| | 17. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarViðtöl við Bjarna og Ólaf Gústafsson um viðureigninaÍ dag er fyrsti leikur Akureyrar og FH í undanúrslitakeppninni og er leikið í Hafnarfirði. Morgunblaðið ræddi við leikmennina Bjarna Fritzson og Ólaf Gústafsson um einvígi liðanna og birtum við þau hér að neðan.Bjarni: Verður æðislegt einvígiBjarni Fritzson leikmaður Akureyrar - handboltafélags hlakkar til rimmunnar við FH í undanúrslitum Íslandsmótsins sem hefst í Kaplakrika í kvöld.
„Þetta verður æðislegt einvígi,“ sagði hann við Fréttavef Morgunblaðsins á Akureyri í morgun. Bjarni segir liðin mjög jöfn að getu og bardaginn geti því endað með sigri hvors liðsins sem er. Akureyringar séu hins vegar staðráðnir í að hefna ófaranna frá því í fyrra, þegar þeir töpuðu fyrir FH-ingum í úrslitum Íslandsmótsins.
Hér er hægt að sjá viðtalið við Bjarna:
Ólafur Gústafsson: Gefum allt til að komast í úrslitÓlafur Gústafsson, rétthenta skyttan í liði FH, á von á hörkuleikjum gegn Akureyringum í undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik en fyrsta viðureign liðanna fer fram í Kaplakrika í kvöld og hefst klukkan 19.
FH og Akureyri léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og Ólafur sagði við mbl.is að úrslit í leikjum liðanna undanfarið hefðu alltaf ráðist á síðustu fimm mínútunum, nema þegar þeir fengu skell á Akureyri núna undir lok Íslandsmótsins.
Ólafur sagði að heimavallarrétturinn skipti miklu máli að sínu mati. „Við erum sterkir á heimavelli og ef um oddaleik verður að ræða, verður gott að hafa hann í Kaplakrika.“
Um andstæðingana frá Akureyri sagði Ólafur að Akureyringar væru með góðan markvörð og skæðir í hraðaupphlaupum, og þeir spiluðu mikið útfrá því.
Hann sagði að FH hefði nýtt vel það hlé sem var að Íslandsmótinu loknu, liðið hefði spilað fína æfingaleiki og þeir sem hefðu verið meiddir fengu tíma til að ná sér. Enda væru allir heilir þegar kæmi að svona mikilvægum leikjum og þeir FH-ingar væru tilbúnir að gefa allt til þess að komast í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn.
|