 Það verður gríðarleg barátta í Kaplakrikanum í kvöld
| | 17. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: FH - Akureyri í beinni á SportTV.isÞað er runninn upp leikdagur og það enginn venjulegur leikdagur. Fyrsti leikur undanúrslitaeinvígis Akureyrar og FH hefst klukkan 19:00 í kvöld, næsti leikur verður síðan hér í Íþróttahöllinni á föstudaginn klukkan 20:00.
Í Vikudegi í dag er stutt viðtal við Heimi Örn Árnason um einvígið: Þetta verður gríðarlega barátta. Ég á marga góða félaga í FH og veit jafnvel og þeir að þetta verður 50-50 rimma, segir Heimir Örn. Ég ætla að vona að þetta verði jafn skemmtilegt í Kaplakrika og í fyrra. Það var frábær umgjörð en þessi tvö lið eiga langbestu umgjörðina á heimavelli þegar þau taka sig til, segir hann. FH og Akureyri mættust í úrslitum í fyrra og þar hafði FH betur, 3-1. Við eigum harma að hefna og ætlum okkur áfram. Ég tel að það séu helmingslíkur á að það takist.
Í sama streng tekur Bjarni Fritzson: Ég er gríðarlega spenntur og reikna með frábæru einvígi, segir Bjarni. Þetta eru hnífjöfn lið og ég held að þetta fari í fimmta leik og að það muni einu marki á liðunum í þeim leik. Svo jafnt verður þetta. Auðvitað hefði maður viljað hafa heimaleikjaréttinn. Við eigum frábæra stuðningsmenn en við verðum að taka einn leik á útivelli og það er bara verkefni fyrir okkur að vinna, sagði Bjarni Fritzson.
SportTV.is sýnir leikinn beint Samkvæmt upplýsingum á vef SportTV ætla þeir að sýna leikinn beint á vefnum, og munum við gera okkar besta til að láta útsendingu þeirra birtast hér á síðunni.Einnig er hægt að smella hér til að fara á síðu SportTV.is. |