Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Guđmundur Hólmar lék seinni hálfleikinn í dag

1. maí 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Akureyri í úrslitaleikinn eftir sigur á Gróttu

Akureyri og Grótta mćttust í dag í leik um hvort liđiđ fćri í úrstlitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn. Ţađ var flott mćting í Höllinni, yfir 350 áhorfendur sem studdu heimamenn vel. Akureyrarstrákar tóku leikinn í sínar hendur strax í upphafi og náđu fljótt fimm marka forystu 6-1.

Strákarnir héldu áfram, munurinn jókst jafnt og ţétt og varđ mestur sjö mörk 11-4. Ţá kom upp kćruleysi og nokkur ćđibunugangur í sókninni sem skilađi Gróttu ófáum hrađaupphlaupum sem komu ţeim inn í leikinn á ný. Stađan í hálfleik var 14-11 fyrir Akureyri og spenna komin í leikinn á ný.

Akureyri hóf seinni hálfleikinn af krafti sem skilađi ţrem fyrstu mörkum hálfleiksins og ţar međ sex marka forystu 17-11. Gangur seinni hálfleiksins var einmitt ţannig ađ Grótta náđi ađ minnka muninn nokkrum sinnum niđur í fjögur mörk en Akureyri bćtti ţá vel í og jók muninn á ný upp í sex til sjö mörk. Ţannig sáust tölur eins og 20-13, 21-17, 23-18. Grótta minnkađi muninn í 24-20 en ţá gerđi Akureyrarliđiđ út um leikinn međ ţrem mörkum í röđ, stađan 27-20. Ţađ var síđan Grótta sem skorađi lokamark leiksins sem lauk međ góđum sex marka sigri 27-21.

Páll Snćvar Jónsson, markvörđur hélt upp á afmćlisdaginn međ frábćrum leik en hann varđi eins og berserkur, alls 18 skot og var mađur leiksins í dag.


Páll Snćvar Jónsson ver međ tilţrifum

Mörk Akureyrar: Bergvin Ţór Gíslason 6, Jón Heiđar Sigurđsson 5, Valţór Atli Guđrúnarsson 5, Geir Guđmundsson 4, Guđmundur Hólmar Helgason 4, Halldór Örn Tryggvason 2 og Bjarki Halldórsson 1.

Í liđi Gróttu skorađi Ţráinn Orri Jónsson 6 mörk og Júlíus Ţórir Stefánsson 5 mörk.

Sigur Akureyrar var sanngjarn og býsna öruggur en ţó er ýmislegt sem hćgt er ađ bćta fyrir úrslitaleikinn sjálfan sem verđur nćstkomandi laugardag.

Í hinni undanúrslitaviđureigninni mćttust Valur og Fram og ţar fór Fram međ sigur af hólmi 25-27 eftir framlengingu. Ţađ verđa ţví Akureyri og Fram sem leika til úrslita á laugardaginn klukkan 15:30 í Scenkerhöllinni (heimavöllur Hauka).

Flottur árangur hjá strákunum en Akureyri hefur nokkrum sinnum komist í úrslitaleikinn en ekki náđ ađ klára hann. Ţađ er ţví kominn tími á ađ fara alla leiđ núna.

Sjá myndir Ţóris Tryggvasonar frá leiknum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson