Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Nú er kominn tími til að taka stóra bikarinn!

4. maí 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Úrslitaleikurinn á laugardag í beinni

Á laugardaginn er komið að stóra deginum hjá strákunum í 2. flokki þegar þeir mæta Fram í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn hefst klukkan 15:30 og verður leikið á heimavelli Hauka, Schenker-höllinni.

Laugardagurinn er lokadagur yngri flokkanna en þá verða leiknir úrslitaleikir í öllum flokkum og krýndir Íslandsmeistarar. Allir leikirnir verða sýndir beint á HaukaTV og verður það aðgengilegt hér á síðunni.

Dagskrá úrslitadagsins er sem hér segir:

kl. 9:30 4. flokkur karla B-lið Grótta 1 - Stjarnan
kl. 11:00 4. flokkur kvenna B-lið Fylkir - Selfoss
kl. 12:30 4. flokkur karla A-lið Fram 1 - Grótta
kl. 14:00 4. flokkur kvenna A-lið Fram - Selfoss
kl. 15:30 2. flokkur karla Akureyri - Fram
kl. 17:15 3. flokkur kvenna Haukar - Fylkir 1
kl. 19:00 3. flokkur karla Selfoss 1 - Valur

Akureyri og Fram mættust tvisvar í deildinni í vetur og unnu sitt hvorn leikinn, 28. október mættust þau í Framheimilinu og þar sigraði Fram 31-26. Seinni leikurinn var á Akureyri 11. febrúar og þar sigraði Akureyri 33-23.

Bæði lið munu örugglega tjalda til sínum sterkustu leikmönnum þannig að ekki þarf að efa að þetta verður hörkuleikur.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson