 Bergvin hefur verið lykilmaður hjá 2. flokki í vetur
| | 5. maí 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Úrslitaleikur 2. flokks klukkan 15:30Í dag leikur Akureyri síðasta leik tímabilsins og það er enginn smáleikur því hann sker úr um hvort Akureyri vinnur sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. Akureyri mætir Fram í úrslitaleik 2. flokks í Schenker-höllinni í Hafnarfirði.
Það er ástæða til að hvetja stuðningsmenn Akureyrar á höfuðborgarsvæðinu til að fjölmenna í Hafnarfjörðinn í dag og standa með strákunum í baráttunni.
Fyrir þá sem ekki hafa tök á að mæta í Haukahöllina verður leikurinn í beinni útsendingu hér á síðunni, þökk sé HaukaTV sem sýnir alla úrslitaleiki 2., 3. og 4. flokka beint í dag.
 Strákarnir leggja allt í sölurnar í dag
|