 Besti leikmaður tímabilsins Bjarni Fritzson
| | 6. maí 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarLokahóf Akureyrar Handboltafélags 2012Eins og venja er var settur endapunktur leiktímabilsins með lokahófi þar sem leikmenn, þjálfarar og allir þeir fjölmörgu sem koma að starfinu gerðu sér glaðan dag. Það spillti ekki gleðinni að strákarnir í 2. flokki færðu félaginu fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins.
Veislan fór fram í Íþróttahöllinni þar sem Sigurður Jóhannsson á Strikinu hafði veg og vanda með glæsilegri grillveislu. Reyndar hófst dagskráin aðeins síðar en ætlað var á meðan beðið var eftir að Íslandsmeistararnir skiluðu sér í bæinn með flugi með bikarinn.
Það var létt yfir mannskapnum og fjölmargir stigu í pontu og ávörpuðu viðstadda. Atla Hilmarssyni voru þökkuð frábær störf undanfarin tvö ár og óskað velfarnaðar í viðfangsefnum sínum í framtíðinni.
Að hefðbundnum hætti var tilkynnt um ýmsar viðurkenningar til leikmanna eftir tímabilið Mestar framfarir: Geir Guðmundsson Besti sóknarmaðurinn: Bjarni Fritzson Besti varnarmaðurinn: Hörður Fannar Sigþórsson Besti leikmaðurinn: Bjarni Fritzson Besti leikmaður 2. flokks: Bergvin Þór Gíslason Verðlaunahafarnir tímabilið 2011-2012 Eins og við var að búast voru menn í hátíðarskapi yfir framlagi 2. flokks og fékk Jóhann Gunnar Jóhannsson, þjálfari þeirra blómvönd en hann er fyrsti þjálfari félagsins til að skila Íslandsmeistaratitli. Hlynur Jóhannsson og Hannes Karlsson færðu Jóhanni Gunnari blómvönd Hér er hægt að skoða fleiri myndir frá hófinu.
|