 Bjarni besta hægri skyttan
| | 13. maí 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarBjarni Fritzson besta hægri skyttan á lokahófi HSÍÍ gær var haldið lokahóf HSÍ þar sem kunngjörðar voru niðurstöður á vali úrvalsliða handknattleiksdeildanna svo og ýmisir verðlaunahafar. Bjarni Fritzson, leikmaður Akureyrar Handboltafélags var valinn besta hægri skytta N1-deildarinnar auk þess að fá viðurkenningu sem makakóngur deildarinnar.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, leikmaður Íslandsmeistara HK var tvímælalaust maður kvöldsins, besta vinstri skyttan, besti sóknarmaður deildarinnar, besti leikmaðurinn og fékk þar að auki Valdimarsbikarinn sem er veittur mikilvægasta leikmanni deildarinnar.
Hér á eftir fylgir listi yfir viðurkenningar í N1 deild karla.
Úrvalslið N1-deildar karla 2011-2012: Markvörður: Aron Rafn Eðvarðsson - Haukar Línumaður: Atli Ævar Ingólfsson - HK Vinstra horn: Bjarki Már Elísson - HK Vinstri skytta: Ólafur Bjarki Ragnarsson - HK Hægra horn: Gylfi Gylfason - Haukar Hægri skytta: Bjarni Fritzson - Akureyri Miðjumaður: Örn Ingi Bjarkason - FH
Verðlaunahafar: Háttvísiverðlaun HDSÍ karla 2012: Bjarki Már Elísson - HK Markahæsti leikmaður N1 deildar 2012: Bjarni Fritzson – Akureyri 163 mörk Besti varnarmaður N1 deildar karla 2012: Matthías Árni Ingimarsson - Haukar Besti sóknarmaður N1 deildar karla 2012: Ólafur Bjarki Ragnarsson - HK Besti markmaður N1 deildar karla 2012: Aron Rafn Eðvarðsson – Haukar Besta dómaraparið 2012: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson Valdimarsbikarinn 2012: Ólafur Bjarki Ragnarsson - HK Besti þjálfari í N1 deild karla 2012: Aron Kristjánsson - Haukar Efnilegasti leikmaður N1 deildar karla 2012: Böðvar Páll Ásgeirsson - Afturelding Besti leikmaður í N1 deild karla 2012: Ólafur Bjarki Ragnarsson - HK Bjarni er ekki óvanur að taka við viðurkenningum
|