 Þá er bara að taka Svíana

| | 5. júlí 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarU-20: Tap gegn Dönum í fyrsta leikÍsland hóf leik í dag á Evrópumóti 20 ára landsliða karla með því að spila gegn Dönum. Leiknum lauk með sex marka tapi, 28 – 22 eftir að staðan var jöfn í hálfleik 12-12. Morgunblaðið hefur það eftir Geir Sveinssyni, þjálfara liðsins að liðið hafi leikið vel fyrstu 40 mínútur leiksins en gefið eftir á lokamínútunum.
Eftirfarandi er tekið af vef HSÍ:
Strákarnir mættu gríðalega einbeittir til leiks og spiluðu fína vörn og agaðan sóknarleik. Voru þeir alltaf á undan að skora og náðu 3ja marka forskoti þegar 5 min voru eftir af fyrri hálfleik 12-9. Ekki síst vegna frábærra takta hjá Darra í markinu. Þá misstu Íslendingar mann útaf og náðu Danir að jafna fyrir hálfleiksflaut. Staðan í hálfleik var 12-12.
Seinni hálfleikur var jafn á öllum tölum fram til á 46 mínútu en þá náðu Danir góðum kafla og Íslensku strákarnir misstu einbeitinguna. Sigu Danir þá framúr og sigruðu að lokum með 28-22. Margt gott er hægt að taka úr þessum leik, strákarnir spiluðu mjög vel í 45 mínútur, en vantaði smá aga eftir það.
Íslenska liðið fékk 4 brottvísanir og Danir 1
Mörk Íslands gerðu: Geir Guðmundsson 7, Ísak Rafnsson 4, Leó Snær Pétursson 3, Sveinn Aron Sveinsson 3 Víglundur Þórsson 2, Magnús Óli Magnússon 1, Árni Benedikt Árnason 1 og Guðmundur Hólmar Helgason 1. Brynjar Dari á mjög góðan leik og varði 15 bolta og Einar Ólafur var með 4 bolta Brynjar Darri var valinn besti leikmaður Íslands.
Hér er hægt að fylgjast með á heimasíðu mótsins.
Næsti leikur Íslands er gegn Svíum á morgun. Íslenski hópurinn, mynd af heimasíðu mótsins
|