 Handboltinn byrjar að rúlla um helgina
| | 29. ágúst 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarOpna Norðlenska mótið um næstu helgiEins og undanfarin haust stöndum við fyrir sterku æfingamóti í samstarfi við Norðlenska. Að þessu sinni taka fjögur úrvalsdeildarlið þátt í mótinu, auk Akureyrar Handboltafélag taka HK, ÍR og Valur þátt í mótinu. Mótið hefst föstudaginn 31. ágúst með tveimur leikjum og laugardaginn 1. september verða fjórir leikir. Allir leikirnir verða í Íþróttahöllinni og verður leikinn fullur leiktími eða 2 x 30 mínútur.
Leikjaniðurröðunin er sem hér segir:
Föstudagurinn 31. ágúst Kl. 19:00 Akureyri - HK Kl. 20:30 ÍR – Valur
Laugadagurinn 1. september Kl. 10:30 Valur - Akureyri Kl. 12:00 HK - ÍR Kl. 14:30 Akureyri - ÍR Kl. 16:00 Valur - HK
Þetta er að sjálfsögðu kærkomið tækifæri fyrir liðin að slípa saman mannskapinn með alvöruleikjum og ekki síst fyrir áhorfendur að rifja aðeins upp taktana áður en alvaran hefst þann 24. september. Það kostar ekkert inn á leikina og öllum frjálst að koma og fylgjast með. Öll liðin eru nokkuð breytt frá síðasta tímabili og því verður spennandi að sjá hvernig þau fara af stað að þessu sinni.
Í mótslok verða verðlaun veitt fyrir 1. sætið og einnig eru fern einstaklingsverðlaun, besti leikmaður mótsins, besti markmaðurinn, besti sóknarmaður og besti varnarmaðurinn. Akureyri og Norðlenska hafa átt frábært samstarf á undanförnum árum.
 |