 Jovan Kukobat átti frábæran leik í dag
| | 31. ágúst 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarFyrri leikdegi Opna Norðlenska lokiðOpna Norðlenska mótið hófst í dag með tveimur leikjum. Í fyrsta leik mættust Akureyri og Íslandsmeistarar HK úr Kópavogi. Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi og jafnt á flestum tölum, Akureyri skoraði síðasta mark hálfleiksins og leiddi 13-12 í hálfleik.
Akureyri náði tveggja marka forskoti með fyrsta markinu í seinni hálfleik og lét forystuna ekki af hendi eftir það. Mestur varð munurinn sex mörk en leiknum lauk með sannfærandi sigri Akureyrar 28-24.
Margir ungir leikmenn fengu að spreyta sig í leiknum og sýndu að það verður hörð barátta um sæti í liðinu í vetur. Það var þó markvörðurinn Jovan Kukobat sem var yfirburðamaður á vellinum með 29 skot varin og þar af 3 vítaköst.
Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 7 (1 úr víti), Geir Guðmundsson 5, Bergvin Gíslason 4, Guðmundur Hólmar Helgason 4, Ásgeir Jónsson 3, Oddur Gretarsson 2, Valþór Guðrúnarson 2 og Sigþór Heimisson 1.
Í liði HK var Bjarki Már Elísson markahæstur með 7 mörk, Bjarki Már Gunnarsson 5, Atli Karl Bachmann 5 og góðkunningi okkar Daníel Einarsson skoraði 4 mörk. Daníel Einarsson í HK gallanum. Ýmsir höfðu á orði að svarti Akureyrarbúningurinn færi honum þó mun betur Í seinni leik dagsins mættust ÍR og Valur. Sá leikur var líkt og fyrri leikurinn hnífjafn til að byrja með. Jafnt var í hálfleik 14-14 en ÍR hafði frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn.
Sami barningur hélt áfram, jafnt á öllum tölum upp í 22-22 en þá sigu Valsarar framúr og lönduðu að lokum fimm marka sigri 25-30. Hjá Val voru Finnur Ingi Stefánsson og Gunnar Malmquist Þórisson markahæstir með 6 mörk hvor. Gunnar Harðarson skoraði 5, Atli Már Báruson og Valdimar Fannar Þórsson 4 mörk hvor.
Hjá ÍR var Sturla Ásgeirsson markahæstur með 7 mörk (4 úr vítum) en Björgvin Hólmgeirsson skoraði 4 mörk.
Mótið heldur áfram á laugardaginn með fjórum leikjum.
Laugadagurinn 1. september Kl. 10:30 Valur - Akureyri Kl. 12:00 HK - ÍR Kl. 14:30 Akureyri - ÍR Kl. 16:00 Valur - HK.
Þeir sem lögðu leið sína í Höllina í dag sáu að þar hafa heldur betur orðið breytingar í sumar en nú er búið að setja upp nýja neðri stúku sem mun gjörbreyta aðstöðu og bæta enn frekar stemminguna á leikjum í vetur. Eins og hér má sjá er neðri áhorfendastúkan í Íþróttahöllinni glæsileg
|