Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Nýbakaður faðir Stefán Guðnason

10. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stebbi Guðna og Sveindís Ósk eignuðust dóttur í gær

Það er ekkert lát á barneignum leikmanna Akureyrar Handboltafélags. Í gærkvöldi bárust þær fréttir af fæðingardeild FSA að þeim Stefáni Guðnasyni markverði og Sveindísi Ósk Ólafsdóttur hefði fæðst myndarleg dóttir sem var 17 merkur að þyngd og 54 cm á lengd. Þetta er frumraun Stefáns og Sveindísar á þessu sviði og því ljóst að lífið tekur umtalsverðum breytingum á næstu dögum.


Brosmildir foreldrar Stefán og Sveindís

Við óskum þeim innilega til hamingju með dótturina og velfarnaðar í foreldrahlutverkinu. Ekki er að efa að nýbakaðir foreldrar í liðinu eru fúsir til að miðla þeim af reynslu sinni.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson