 Það verður örugglega hart barist í Höllinni í dag
| | 18. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Akureyri – Afturelding í beinni textalýsinguÞá er komið að þriðja heimaleiknum okkar á leiktíðinni þegar við tökum á móti Aftureldingu úr Mosfellsbænum. Við kynntum lið þeirra hér á heimasíðunni fyrir nokkru og vísum á kynninguna hér.
Leikurinn hefst að vanda klukkan 19:00 í Íþróttahöllinni og nú reynir á okkar menn og stuðningsmenn að sýna sínar bestu hliðar til að ná fram hagstæðum úrslitum.
Heimasíðan verður að venju með beina textalýsingu frá leiknum bæði er hægt að fylgjast með lýsingunni í sjálfstæðum glugga með ítarlegum upplýsingum um allan gang leiksins auk þess sem staðan og það allra nýjasta uppfærist á forsíðunni einnig og sama gildir um nýja farsímavefinn okkar, þar uppfærist staðan einnig. Smelltu hér til að opna lýsingarsíðuna.
Leikurinn hefst eins og áður segir klukkan 19:00 en fyrir leikinn er handhöfum Gullkorta boðið upp á heitan mat. Líkt og síðast verður maturinn framreiddur í nýstækkaðri aðstöðu félagsins sem er við anddyri Hallarinnar (á vinstri hönd þegar gengið er inn). Maturinn verður framreiddur upp úr klukkan 18:00. Þeir sem enn eiga eftir að verða sér úti um stuðningsmannaskírteini geta gert það í anddyri Hallarinnar og drifið sig síðan í matinn.
Gaman fyrir börnin Á síðasta heimaleik var opnað sérstakt leiksvæði fyrir börn, í gamla stuðningsmannaherberginu voru sett upp tvö mörk og margir mjúkboltar þar sem krakkarnir léku sér af hjartans list. Að sjálfsögðu var gæsla í herberginu og mæltist þetta ákaflega vel fyrir. Við endurtökum að sjálfsögðu leikinn í dagi.
|