 Liðin skildu jöfn í upphafsleik deildarinnar í haust
| | 15. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Útileikur gegn FH í beinni textalýsinguÍ dag hefst annar þriðjungur N1 deildarinnar þegar 8. umferðin fer af stað. Liðin sem mættust í 1. umferðinni mætast nú öðru sinni en heimavöllurinn víxlast. Þetta þýðir að Akureyri og FH mætast í Hafnarfirði. Staðan í deildinni fyrir þessa umferð er einkar athyglisverð, Haukar langefstir með sex stiga forskot en þar á eftir koma Akureyri, Fram, FH og ÍR öll með 7 stig.
Bæði lið munu án efa leggja allt í sölurnar til að komast á sigurbraut í deildinni, Akureyri eftir þrjá tapleiki í röð en FH eftir tap gegn erkifjendum sínum í Haukum.
Akureyrarliðið hefur glímt við ítrekuð og erfið meiðsli lykilmanna, nú síðast heltist varnarjaxlinn Hreinn Hauksson úr leik vegna meiðsla. Stöðu hans tók reynsluboltinn Guðlaugur Arnarsson sem stóð vaktina í bikarleiknum gegn Víkingum. Gulli stóð vel fyrir sínu og verður væntanlega í hóp í kvöld.
FH ingar hafa heldur betur bætt í leikmannahópinn hjá sér. Leikstjórnandinn Ásbjörn Friðriksson sneri heim úr atvinnumennsku í Svíþjóð og fór fyrir FH-ingum í tapleiknum gegn Haukum um síðustu helgi. Þá er silfurdrengurinn, Logi Geirsson mættur til leiks á ný og morgunljóst að þeir eiga eftir að setja mark sitt á FH liðið í vetur.
Nú hefur komið á daginn að ekkert verður úr beinni útsendingu hjá SportTV.is frá leiknum en þess í stað hefur heimasíðan gert ráðstafanir til að verða með beina textalýsingu frá leiknum. Leikurinn hefst klukkan 18:00 eins og flestir útileikir Akureyrar gera og verður auðvelt að fylgjast með lýsingunni hér á síðunni.
Smelltu hér til að fylgjast með lýsingunni. |