 Bergvin átti frábćran leik í kvöld
| | 15. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarFrábćr sigur á FH í kvöldAkureyrarliđiđ sýndi ţađ í kvöld ađ ţađ er sko ekki aldeilis dautt úr öllum ćđum ţrátt fyrir brösugt gengi í síđustu leikjum. Bergvin Gíslason gaf tóninn međ fyrsta marki leiksins en Bergvin átti frábćran leik í kvöld. Jafnt var á svo til öllum tölum upp í stöđuna 7-7 en komu ţrjú norđanmörk í röđ 7-10 og stemmingin í liđinu algjörlega frábćr. Áfram var haldiđ og í hálfleik var munurinn orđinn fjögur mörk, 12-16.
Sóknarleikurinn í fyrri hálfleik var til fyrirmyndar, Bergvin blómstrađi í skyttunni og Guđmundur Hólmar leysti miđjustöđuna frábćrlega. Vörnin var sterk og Jovan Kukobat hreint magnađur í markinu. Bergvin í baráttu viđ Ásbjörn Friđriksson. Mynd: mbl.is/Ómar Óskarsson Seinni hálfleikurinn byrjađi hins vegar ekki eins vel. FH-ingar tóku völdin á vellinum og sneru leiknum sér í vil. Á fyrstu tólf mínútum hálfleiksins skoruđu FH-ingar sjö mörk gegn einu og breyttu stöđunni í 19-17. međ fimm mörkum í röđ Mest náđu FH-ingar ţriggja marka forystu 22-19 ţegar níu mínútur voru til leiksloka og ákveđiđ vonleysi komiđ í stuđningsmenn Akureyrar. En ţá hófst endurkoman og ţvílíkur snilldarleikur. Vörnin skellti gjörsamlega í lás og ţar fyrir aftan fór Jovan hamförum í markinu.
Í sóknarleiknum minnti Guđmundur Hólmar heldur betur á sig, skorađi ţrjú mörk í röđ međ sannkölluđum sleggjum en á ţessum kafla skorađi Akureyri sex mörk í röđ og gerđi út um leikinn, stađan orđin 22-25 og hálf mínúta eftir af leiknum.
Ólafur Gústafsson minnkađi muninn í tvö mörk en Andri Snćr kom muninum aftur í ţrjú mörk međ síđasta marki leiksins. Frábćr frammistađa hjá liđinu sem blés á allar hrakspár undanfarna daga međ hreint út sagt mögnuđum leik.
Bergvin Gíslason og Guđmundur Hólmar voru frábćrir í sóknarleiknum og varnarleikurinn mestan hluta leiksins stórbrotinn. Einnig sýndi Jovan mönnum hvađ hann getur í markinu og munar heldur betur um ţađ.
Ef liđiđ heldur ţessari baráttu og liđsheild í komandi leikjum verđur ekki leiđinlegt ađ fylgjast međ nćstu leikjum.
Ţađ er reyndar athyglisvert ađ Akureyri fékk ekkert vítakast í öllum leiknum.
Mörk Akureyrar: Guđmundur Hólmar Helgason 7, Bergvin Gíslason 6, Bjarni Fritzson 5, Andri Snćr Stefánsson 4, Friđrik Svavarsson 2, Geir Guđmundsson 1 mark og Heimir Árnason 1.
Jovan Kukobat stóđ í markinu allan tímann og varđi 17 skot, ţar af 1 vítakast.
Hjá FH var Ólafur Gústavsson markahćstur međ 6 mörk, Ragnar Jóhannsson međ 5 og Ásbjörn Friđriksson 4.
Nćsti leikur liđsins er svo heimaleikur gegn Fram fimmtudaginn 22. nóvember. |