Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Við óskum Arnóri góðs bata

20. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Kveðjur til Arnórs Atlasonar

Eins og öllu áhugafólki um handknattleik er kunnugt var Arnór Atlason fyrir þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að slíta hásin á sunnudaginn. Að sjálfsögðu eru þetta hrikaleg vonbrigði fyrir Arnór sjálfan og fjölskylduna, sem er nýlega búin að koma sér fyrir í Þýskalandi, auk þess sem skarð hans bæði hjá íslenska landsliðinu og þýska liðinu Flensburg verður vandfyllt.

Samkvæmt heimildum okkar fer Arnór væntanlega í aðgerð í dag eða á morgun og verður hún framkvæmd í Flensburg. Það verður síðan að koma í ljós hvað bati og endurhæfing tekur langan tíma en ljóst að það verða þó nokkrir mánuðir.

Akureyri Handboltafélag sendir Arnóri og fjölskyldu góðar kveðjur í þessum óskemmtilegu aðstæðum með von um góðan bata.

Stutt er síðan fréttir bárust að Arnór hefði gert samning við franska liðið St. Raphaël og tekur hann gildi 1. júlí í sumar. Þess má geta að tveir leikmenn Akureyrar Handboltafélags hafa leikið með St. Raphaël. Það eru þeir Bjarni Fritzson og Jónatan Magnússon sem hafa báðir verðið á mála hjá félaginu.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson