Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Handboltinn hjá meistaraflokki er að fara af stað

23. janúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Deildarbikarinn um næstu helgi

Nú styttist í að handboltinn hjá meistaraflokki fari að rúlla á nýjan leik. Um næstu helgi fer deildarbikar karla fram og verður leikið í Íþróttahúsinu í Strandgötu í Hafnarfirði. Deildarbikarinn heitir raunar Flugfélag Íslands bikarinn eftir styrktaraðila mótsins. Það eru Akureyri, FH, Fram og Haukar sem eigast við á mótinu. Fyrsti leikurinn er klukkan 14:00 á laugardaginn þar sem Haukar og Fram mætast en þar á eftir, eða klukkan 16:00 mætast Akureyri og FH.

Sigurliðin í þessum tveim leikjum mætast síðan í úrslitaleik á sunnudaginn klukkan 14:00.

Að sjálfsögðu gerum við ráð fyrir að stuðningsmenn Akureyrar flykkist í Hafnarfjörðinn á leikina, en undanfarin ár hefur verið mikil og góð stemming á þessum leikjum.

SportTV.is auglýsti á dögunum að þeir ætluðu að sýna leikina beint á netinu en eitthvað virðist það hafa breytst því þeir eru alls ekki lengur á dagskrá þar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson