 Loksins heimaleikur í bikarnum
| | 24. janúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri fær FH í SímabikarnumNú rétt í þessu var dregið í 8-liða úrslitum Símabikarsins og aldrei þessu vant þá dróst Akureyri á móti FH og að þessu sinni á Akureyri heimaleik. Undanfarin fimm ár hafa liðin mæst í bikarnum, en aðeins einu sinni áður hér á Akureyri.
Leikirnir í 8-liða úrslitunum eiga að fara fram dagana 10. og 11. febrúar og eru liðin sem hér segir: Akureyri - FH Þróttur - Stjarnan ÍR – Haukar Selfoss – ÍBV
Jafnframt var tilkynnt breyting á fyrirkomulagi bikarúrslitanna. Að þessu sinni verður sérstök bikarhelgi þar sem fjögurra liða úrslitin og úrslitaleikurinn verða leikin sömu helgina. Undanúrslit karla verða föstudaginn 8. mars, undanúrslit kvenna laugardaginn 9. mars og síðan báðir úrslitaleikirnir sunnudaginn 10. mars. Bikarúrslitaleikir yngri flokka fara fram sömu helgi. |