Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Mikilvægur leikur í dag

26. janúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

FÍ-deildarbikarinn: FH-Akureyri í beinni textalýsingu

Í dag hefst keppni í deildarbikarnum í handbolta sem kenndur er við Flugfélag Íslands. Leikið verður í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði og fara undanúrslitin fram í dag.
Í fyrri leik dagsins mætast Haukar og Fram en í seinni leik dagsins mætast FH og Akureyri.
Liðin sem sigra í leikjum dagsins mætast svo í úrslitaleik á morgun.

SportTV.is var búið að auglýsa að leikirnir yrðu sýndir beint á heimasíðu þeirra en svo virðist sem þeir hafi hætt við og einungis ítalskur fótbolti á dagskrá þeirra í dag.

Okkar maður verður hins vegar á staðnum með beina textalýsingu frá leiknum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson