 Geir Guðmundsson átti magnaðan leik í dag
| | 26. janúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri úr leik í deildarbikarnumAkureyri mætti FH í undanúrslitum deildarbikarsins í dag en leikið var í Hafnarfirði. Leikurinn fór vel af stað hjá Akureyri sem hafði forystu lengi framan af fyrri hálfleik. Undir lok hálfleiksins náði FH þó yfirhöndinni og leiddi með tveim mörkum í hálfleik, 13-11.
Jovan Kukobat var frábær í markinu, varði t.d. fyrstu fimm skot FH inga og var með 12 varin skot í hálfleiknum.
Akureyri hóf seinni hálfleikinn með látum, jafnaði í 13-13 og komst yfir 14-15 og 15-16. Í kjölfarið kom slakur kafli og FH ingar náðu góðri forystu sem aldrei tókst að jafna. Leiknum lauk með fjögurra marka sigri heimamanna 28-24.
Vörnin var góð hjá liðinu en sóknarleikurinn gekk ekki alveg nógu vel auk þess sem markvarslan í seinni hálfleik var ekki í sama klassa og í þeim fyrri.
Bjarni Fritzson lék ekki með í dag vegna eymsla í kálfa en Hörður Fannar Sigþórsson lék sinn fyrsta leik á tímabilinu og ljóst að endurkoma hans styrkir liðið gríðarlega.
Mörk Akureyrar: Geir Guðmundsson 9, Guðmundur Hólmar Helgason 4, Hörður Fannar Sigþórsson 3, Valþór Guðrúnarson 3, Bergvin Gíslason 2, Andri Snær Stefánsson 1, Heimir Örn Árnason 1 og Hreinn Hauksson 1 mark.
Í markinu varði Jovan Kukobat 14 skot og Stefán Guðnason 3 skot. |