Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Bergvin er klár í slaginn gegn Val

7. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Valur – Akureyri í beinni textalýsingu

Eftir langt hlé í N1 deildinni er stutt á milli leikja núna því í dag mætast Valur og Akureyri í Vodafonehöllinni. Leikurinn skiptir gríðarlega miklu máli fyrir bæði liðin. Akureyri þarf á sigri að halda til að eiga möguleika á að komast í 3. eða 4. sæti deildarinnar en þá þarf líka að treysta á að Fram og ÍR vinni ekki bæði sína leiki.

Akureyrarliðið vill klárlega hefna fyrir tapið gegn Val hér í Höllinni en sá leikur var hörkuspennandi allt þar til í lokin að Valsmönnum gekk allt í haginn og innbyrtu fjögurra marka sigur, 23 - 27. Það er því ástæða til að hvetja alla stuðningsmenn Akureyrar sem eiga þess kost að mæta á leikinn og berjast fyrir sigri.

Valsmenn leggja líka örugglega allt í sölurnar til að reyna að komast úr botnsæti deildarinnar enda hafa þeir styrkt lið sitt verulega á síðustu vikum.

Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður okkar maður á staðnum með beina texalýsingu sem opnast hér á síðunni þegar líður á daginn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson