 Mikið áfall fyrir Hörð og Akureyri
| | 7. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarHörður Fannar sleit krossband, spilar ekki meira á tímabilinuHörður Fannar Sigþórsson línumaðurinn sterki í liði Akureyrar sem er nýkominn aftur til liðs við félagið eftir að hafa leikið í Færeyjum er með slitið krossband. Hörður lék sinn fyrsta leik með Akureyri á tímabilinu á mánudaginn gegn Haukum en fór útaf meiddur eftir einungis 8 mínútur.
Nú er komið í ljós að Hörður sleit krossband og mun fara í aðgerð vegna meiðslanna í mars, það er því alveg ljóst að hann mun ekki spila meira með Akureyri í vetur. Þetta er auðvitað mikið áfall fyrir Hörð sem og félagið enda búið að vera töluvert um meiðsli í vetur. Oddur Gretarsson sleit einnig krossband fyrr í vetur, ótrúlegt en satt einnig gegn Haukum.
Heimasíðan óskar Herði góðs bata og bíður spennt eftir því að sjá hann koma til baka tvíefldur þegar hann nær sér. |