 Bjarni var í þjálfarahlutverkinu í dag
| | 7. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarJafntefli niðurstaðan hjá Val og AkureyriLíkt og stundum áður í vetur var lið Akureyrar hálf vængbrotið enda meiðslalistinn langur. Hvorki Bjarni Fritzson né Hörður Fannar voru með í kvöld. Valsmenn byrjuðu leikinn betur og náðu fljótlega tveggja marka forystu 4 -2 og 5 – 3. Akureyrarliðið var þó ekki á þeim buxnum að gefast upp og með fínum leikkafla náðu þeir að jafna í 5 -5 og komast yfir í stöðunni 7 – 8. Hreinn og Guðmundur búnir að stöðva serbnesku skyttu Valsmanna. Mynd: Daníel/visir.is Liðið leit flott út á þessum kafla og forystan varð mest þrjú mörk 9-12 og 10 – 13 en Valur skoraði síðasta mark fyrri hálfleiks og munurinn því tvö mörk, 11 – 13 Akureyri í vil. Andri Snær skorar eitt af þrem mörkum sínum. Mynd: Daníel/visir.is Byrjun seinni hálfleiks var á sömu nótum og fljótlega var forysta Akureyrar orðin fimm mörk, 12 -17 og virtist Akureyri hafa leikinn í hendi sér. Valsmenn gáfust ekki upp og náðu að vinna sig inn í leikinn á ný og jöfnuðu í 20 – 20 þegar tíu mínútur voru eftir.
Í kjölfarið náði Valur meira að segja forystunni í 21 – 20 og aftur 22 – 21. Í þeirri stöðu varði Jovan Kukobat vítakast og Akureyri komst yfir á nýjan leik 22 – 23 og 23 – 24 en Valdimar Þórsson náði að skora ótrúlegt jöfnunarmark þegar sjö sekúndur voru til leiksloka og þar við sat, jafntefli 24 – 24.
Leikmenn Akureyrar börðust vel í leiknum og var synd að missa leikinn í jafntefli. Bergvin Þór Gíslason var frábær í leiknum, skoraði 10 mörk í öllum regnbogans litum. Bergvin átti stórleik og skoraði 10 mörk. Mynd: Daníel/visir.is Varnarleikurinn var lengst af mjög góður og Jovan Kukobat góður í markinu.
Mörk Akureyrar: Bergvin Þór Gíslason 10, Guðmundur Hólmar Helgason 4, Andri Snær Stefánsson 3, Geir Guðmundsson 3, Heimir Örn Árnason 3 (1 úr víti) og Garðar Már Jónsson 1 mark. Í markinu varði Jovan Kukobat 15 skot, þar af 2 vítaköst.
Mörk Vals: Finnur Ingi Stefánsson 7, Nikola Dokic 7 (2 úr vítum), Orri Freyr Gíslason 3, Valdimar Fannar Þórsson 3, Þorgrímur Smári Ólafsson 2, Vignir Stefánsson 1 og Magnús Einarsson 1 Hlynur Morthens varði 9 skot og Lárus Helgi Ólafsson 8 (þar af 1 víti). |