 Guðmundur Hólmar fann sig vel í Safamýrinni í dag
| | 17. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarTap gegn Fram í Safamýrinni í dagAkureyri tókst ekki að fylgja eftir sigrinum á FH frá miðvikudeginum þegar liðið mætti Fram í N1-deildinni. Fram byrjaði betur og náði fjögurra marka forskoti 7 – 4 en með góðum kafla jafnaði Akureyri í 8 -8 þegar 20 mínútur voru liðnar af leiknum. Akureyri missti tvo menn útaf um tíma og Fram seig framúr aftur en í leikhléi var forysta Fram eitt mark, 13-12.
Guðmundur Hólmar var gríðarlega öflugur í sóknarleiknum og skoraði 6 mörk í hálfleiknum, Geir 4 og Bergvin 2. Guðmundur Hólmar átti frábæran leik Seinni hálfleikur hófst með svipuðum hætti og sá fyrri, lítið gekk í sóknarleik Akureyrar og Fram náði fimm marka forystu, 18 – 13. Sá munur hélst lengi vel en Akureyri hleypti spennu í leikinn og minnkaði muninn í tvö mörk, 24 – 22 þegar sex mínútur voru eftir. Það dugði þó ekki, Heimir Örn fór meiddur af velli og Bergvin sína þriðju brottvísun og Fram vann lokakafla leiksins með sex mörkum gegn einu og leikinn þar með 30 – 23. Geir stöðvar Ólaf Magnússon í hraðaupphlaupi Fram liðið var öflugt í dag og ekki bætti úr skák að tölfræði dómgæslunnar var Akureyrarliðinu ekki beinlínis hagstæð. Þannig fékk Akureyri sjö brottvísanir en Fram liðið eina auk þess sem Fram fékk 6 vítaköst en Akureyrarliðið ekki eitt einasta. Heimir Örn meiddist á ökkla og þurfti að yfirgefa völlinn Myndirnar tók Valgarður Gíslason, ljósmyndari visir.is Guðmundur Hólmar Helgason var yfirburðamaður hjá liðinu í dag með 10 mörk úr 11 skotum þá átti Jovan Kukobat prýðisgóðan leik í markinu.
Mörk Akureyrar: Guðmundur Hólmar Helgason 10, Geir Guðmundsson 6, Bergvin Þór Gíslason 5, Friðrik Svavarsson 1 og Valþór Guðrúnarson 1.
Í markinu varði Jovan Kukobat 18 skot og Stefán Guðnason reyndi við tvö vítaköst og varði annað þeirra með stæl.
Það er óhætt að segja að það sé ströggl framundan því næsti leikur er gegn Haukum í Hafnarfirði fimmtudaginn 21. febrúar. |