Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Guðmundur fór á kostum gegn Fram

19. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Guðmundur Hólmar í úrvalsliði 15. umferðar hjá handbolti.org

Handbolti.org birtir í dag val á úrvalsliði 15. umferðar N1 deildar karla. Akureyri Handboltafélag á einn fulltrúa í liðinu að þessu sinni, það er Guðmundur Hólmar Helgason en hann átti hreint magnaðan leik gegn Fram á sunnudaginn og skoraði þar 10 mörk úr 11 skotum.

Úrvalslið 15. umferðar er þannig skipað:
Markvörður: Aron Rafn Eðvarðsson, Haukum (2)
Línumaður: Þrándur Gíslason, Aftureldingu (1)
Vinstri hornamaður: Bjarki Már Elísson, HK (5)
Vinstri skytta: Jóhann Jóhannsson, Aftureldingu (3)
Miðjumaður: Guðmundur Hólmar Helgason, Akureyri (2)
Hægri skytta: Björgvin Hólmgeirsson, ÍR (3)
Hægri hornamaður: Einar Rafn Eiðsson, FH (3)

Morgunblaðið birtir sömuleiðis sitt val og einhverra hluta vegna er Guðmundur Hólmar ekki í náðinni hjá þeim en úrvalslið Morgunblaðsins er þannig skipað: Líkt og áður þá segir talan í sviganum hversu oft viðkomandi leikmaður hefur verið valinn í liðið:

Vinstri hornamaður: Stefán Darri Þórsson, Fram
Vinstri skytta: Jóhann Jóhannsson, Aftureldingu (4)
Leikstjórnandi: Sigurður Eggertsson, Fram (3)
Hægri skytta: Logi Geirsson, FH (2)
Hægri hornamaður: Einar Rafn Eiðsson, FH (4)
Línumaður: Þrándur Gíslason, Aftureldingu
Markvörður: Kristófer Fannar Guðmundsson, ÍR
Varnarmaður: Ingimundur Ingimundarson, ÍR
Leikmaður umferðarinnar: Jóhann Jóhannsson, Aftureldingu.


Guðmundur Hólmar og Logi Geirsson eru í sitt hvoru úrvalsliðinu

Við óskum Guðmundi Hólmari og öllum ofangreindum leikmönnum til hamingju með tilnefningarnar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson