 Helga Steinunn formaður Samherjafjóðsins
| | 28. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarÞakkir til Samherja fyrir ómetanlegan styrkSamherji hf. boðaði til móttöku í KA-heimilinu í gær og afhenti við það tækifæri styrki til ýmissa samfélagsverkefna, samtals upp á 90 milljónir króna. Töluverður hluti styrkjanna eru veittir til íþrótta og æskulýðsstarfs en auk þess verður Samherji nú einn helsti stuðningsaðili Íþróttasambands fatlaðra vegna Special Olympics auk þess sem félagið leggur fram fé til kaupa á tölvum, tengingum og öðrum tilheyrandi búnaði fyrir íbúa Öldrunarheimila Akureyrar. Þetta er fimmta árið í röð sem Samherji afhendir slíka styrki. Helga Steinunn Guðmundsdóttir afhendir Hermanni Haraldssyni styrk til Akureyrar Handboltafélags Akureyri Handboltafélag er eitt þeirra fjölmörgu félaga sem nýtur góðs af þessum höfðinglega styrk Samherja og viljum við þakka Samherjafólki fyrir ómetanlegan stuðning við Akureyri handboltafélag í gegnum tíðina. Takk kærlega fyrir okkur.
Stjórn og leikmenn Akureyrar handboltafélags. Allur hópurinn við athöfnina í gær
|