Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Tomas og félagar eru hvergi nærri hættir

5. apríl 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Akureyri mætir Val í 8 liða úrslitum

Nú er orðið ljóst að Akureyri-1 mætir Val í átta liða úrslitum Íslandsmótsins hjá 2. flokki. Akureyri-1 endaði í 4. sæti deildarinnar og fær því heimaleikjaréttinn gegn Val sem hafnaði í 5. sæti. Í úrslitakeppninni þarf einungis að vinna einn leik og því verður allt undir þegar liðin mætast í Íþróttahöllinni mánudaginn 15. apríl klukkan 19:00.

Akureyri varð Íslandsmeistari í 2. flokki síðasta vor þannig að það þarf ekki að efast um að það er fullur metnaður hjá strákunum að fara alla leið og verja titilinn. Nánar um leikinn þegar nær dregur.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson