 Nú hefst alvaran
| | 16. ágúst 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarFöstudagsleikurinn: Akureyri gegn GorenjeAlþjóðlega æfingamótið Der Handball Champions Cup í Dessau í Þýskalandi hefst í dag með tveimur leikjum í hvorum riðli. Akureyri leikur við slóvensku mestarana í RK Gorenje Valenje klukkan 19:00 að þýskum tíma sem myndi vera klukkan 17:00 að íslenskum tíma. Mótið er nú haldið í 11. sinn og í sjötta sinn sem það fer fram í bænum Dessau.
Eins og fram hefur komið hjá okkur þá taka átta lið þátt í mótinu og leikur Akureyri Handboltafélag í A-riðli ásamt Gorenje og þýsku liðunum Gummersbach og heimamönnum í Dessau Rosslauer. Í B riðli eru þýsku liðin HSG Wetzlar og DHFK Handball Leipzig ásamt franska liðinu Saint-Raphaël og Hvít-Rússneskum meisturunum í Dinamo Minsk.
Leikirnir í A-riðli fara fram í bænum Hohenmölsen, klukkan 17:00 leika Gummersbach og Dessau Rosslauer HV en klukkan 19:00 leika Akureyri og Gorenje.
Það er ekki laust við að Akureyrarliðið verði innan um ýmsar þekktar kempur á mótinu, fyrstan skal nefna íslenska landsliðsmanninn Arnór Atlason sem spilar með Saint-Raphaël. Mynd af Arnóri á heimasíðu Saint-Raphaël Þá má búast við því að nýjasti leikmaður HSG Wetzlar taki þátt en það er enginn annar en einn albesti leikmaður heims undanfarin ár, Ivano Balic en hann gekk í raðir þýska liðsins síðastliðinn mánudag. Balic komin í Wetzlar búninginn. Mynd af heimasíðu Wetzlar Við vonumst til að úrslit leikjanna birtist á heimasíðu mótsins jafnskjótt og leikjunum lýkur, smelltu hér til að skoða leikjaplan mótsins.
Á laugardaginn leika síðan annarsvegar vinningsliðin úr leikjum dagsins og hins vegar tapliðin. Á sunnudaginn verður síðan leikið um sæti, og þá er hugsanlegt að Akureyri fái að glíma við Arnór Atlason eða Ivano Balic þar sem þeirra lið eru í B-riðlinum.
|