Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Norðursport fjallar um alla flokka íþrótta

27. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Íþróttavefurinn Norðursport.net í loftið

Í vikunni fór í loftið nýr norðlenskur íþróttafréttamiðill sem nefnist Norðursport. Þessi miðill ætlar sér að fjalla um allar íþróttir á Akureyri og nágrenni, auk þess að fylgjast með íþróttamönnum frá Akureyri úti í hinum stóra heimi. Ætlunin er sömuleiðis að yngri íþróttaiðkendur fái sína umfjöllun.

Síðan setur sér það markmið að inn á síðuna komi aldrei færri en fimm nýjar fréttir á dag og auðvitað helst fleiri.
Eigendur og ritstjórar Norðusports eru þeir Jón Stefán Jónsson og Hlynur Birgisson sem eru gjörkunnugir íþróttum og umhverfi þeirra.

Akureyri-handboltafélag býður nordursport.net velkomið til leiks og væntir þess að tilkoma þess verði öllu íþróttastarfi á svæðinu til framdráttar.

Skoða heimasíðu Norðursport.net.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson