Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Ţeir sem heima sitja geta fylgst međ leiknum á RÚV

28. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: ÍR – Akureyri í beinni á RÚV




Ţađ má búast viđ hörkuleik ţegar Akureyri fer í heimsókn til ÍR-inga í Austurbergiđ. ÍR kom af krafti til leiks í úrvalsdeildinni í fyrravetur og fór í fjögurra liđa úrslitin auk ţess ađ hampa bikarmeistaratitlinum. Áriđ áđur sigrađi ÍR 1. deildina og styrkti leikmannahópinn svo um munađi fyrir baráttuna í fyrra.

ÍR-ingar ćtla sér enn stćrri hluti í vetur og halda flestum sínum leikmönnum en hafa heldur betur bćtt í hópinn. Af nýjum leikmönnum í ár má nefna markvörđinn Arnór Frey Stefánsson, sem hefur leikiđ međ HK undanfarin ár. Kristinn Björgúlfsson sneri heim eftir ađ hafa leikiđ erlendis undanfarin ár. Ţá hafa ÍR-ingar fengiđ til sín Arnar Birki Hálfdánarson sem kom frá FH en hefur ţrátt fyrir ungan aldur gert garđinn frćgan međ liđi Fram.

Línumađurinn Halldór Logi Árnason er hins vegar kominn aftur heim, í rađir Akureyrar og skyttan Jónatan Vignisson gekk í rađir Víkinga. Ţá er Akureyringurinn og hornamađurinn Ólafur Sigurgeirsson hćttur svo og Hermann Marinósson.

Fyrir eru síđan kapparnir sem báru liđiđ uppi síđasta tímabil eins og Björgvin Hólmgeirsson, Sturla Ásgeirsson, Jón Heiđar Gunnarsson og Ingimundur Ingimundarson svo fáir séu nefndir.

Gengi ÍR-inga í fyrstu umferđ deildarinnar varđ ţeim vonbrigđi ţar sem ÍR tapađi illa fyrir Vestmannaeyingum og nćsta víst ađ ţeir ćtli sér ađ sýna ađ sá leikur var slys.

Akureyrarliđiđ ćtlar sér síđan klárlega ađ fylgja eftir góđum sigri á Fram í upphafi mótsins ţannig ađ ţađ er fullljóst ađ áhorfendur fá fullt fyrir peninginn ađ ţessu sinni.

Viđ hvetjum alla stuđningsmenn Akureyrar á höfuđborgarsvćđinu til ađ fjölmenna á leikinn og láta duglega í sér heyra en ÍR-ingar héldu uppi flottri stemmingu á heimaleikjum sínum síđasta vetur.

Rétt er ađ benda á ađ leikurinn verđur í beinni útsendinu á RÚV og hefst klukkan 15:45 á laugardaginn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson